Vor á Vatnsnesi fór fram úr okkar björtustu vonum

Vor á Vatnsnesi fór fram úr okkar björtustu vonum
Hótel Keflavík fagnaði 40 ára afmæli með tónlist, fjölskyldustemningu og einstakri bæjarhátíð í Reykjanesbæ
Dagana 15.–17. maí hélt Hótel Keflavík upp á 40 ára afmæli sitt með hátíðinni Vor á Vatnsnesi og viðtökurnar fóru sannarlega fram úr okkar björtustu vonum. Þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi aðeins strítt okkur á köflum mættu gestir á öllum aldri til að fagna með okkur og skapa einstaka stemningu á Vatnsnesi og víðar í Reykjanesbæ.
Í tilefni af þessum stóra áfanga ákváðum við að leggja sérstaklega mikið í dagskrána þetta árið og gera extra vel við gesti hátíðarinnar. Markmiðið var að skapa helgi sem sameinaði tónlist, fjölskyldustemningu, sögu bæjarins og þann hlýleika sem hefur fylgt Hótel Keflavík í gegnum 40 ára ferðalag.
Viðtökurnar og stuðningurinn sem við fundum frá samfélaginu fóru langt fram úr okkar væntingum og við erum ótrúlega þakklát öllum þeim sem tóku þátt í að gera helgina svona sérstaka.
KEF Moët kampavínshlaupið sló í gegn
Einn af hápunktum helgarinnar var án efa KEF Moët kampavínshlaupið sem vakti mikla lukku meðal gesta og bæjarbúa. Þrátt fyrir íslenskt maíveður var stemningin ótrúleg frá upphafi til enda og þátttakendur mættu í litríkum búningum, með bros á vör og tilbúnir að njóta dagsins saman.
DJ Sakki sá um tónlistina og stemninguna við Vatnsnes og þegar rigningin lét sjá sig gerðum við einfaldlega það besta úr því — dönsuðum saman í rigningunni með bros á vör. Það voru einmitt svona augnablik sem gerðu daginn svo eftirminnilegan.
Veitt voru glæsileg verðlaun og gjafapokar upp á tugi þúsunda króna og viljum við færa sérstakar þakkir til allra þeirra fyrirtækja sem lögðu okkur lið með vinningum og stuðningi:
Nathan og Olsen, Bætiefnabúllan, Zolo & Co, Ölgerðin, Dubliner, Líkami og Boozt, Sporthúsið, GeoSilica, Blue Lagoon, Brons, Blue Car Rental, Golfklúbbur Suðurnesja, Andrea Maack, Viney, Langbest, JAD MAR, Bústoð og Snúran, Marion Herrafataverslun, Skóbúðin, Fjóla gullsmiður, Sport24, Blómabúð Mögdu, Palóma, Reykjanes Optikk, Hafnargata 15 – Gallerí, Skólamatur, Danól, LoveIceland, CeraVe, La Roche-Posay, Nicks og 7UP.
Stuðningurinn skipti gríðarlega miklu máli og hjálpaði okkur að gera upplifunina enn skemmtilegri fyrir þátttakendur.
Gleði fyrir alla fjölskylduna
Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu margar fjölskyldur mættu á hátíðina. Börnin skemmtu sér konunglega á leiksýningu Leikhópsins Lottu og fjöldi barna mætti á Vatnsnes þar sem frítt var í hoppukastala yfir helgina.
Dons Donuts gladdi svo gesti með kleinuhringjum sem slógu heldur betur í gegn hjá yngstu kynslóðinni og skapaðist einstaklega skemmtileg fjölskyldustemning á svæðinu allan daginn.
Hátíðleg vígsla Vatnsness
Einn af stærstu áföngum helgarinnar var formleg vígsla Vatnsness sem fór fram við hátíðlega athöfn í fallegri stemningu.
Steinþór Jónsson og Hildur Sigurðardóttir opnuðu húsið formlega við hátíðlega móttöku ásamt Reykjanesbæ þar sem bæjarstjórn, oddvitar stjórnmálaflokka, verktakar, iðnaðarmenn, vinir, vandamenn og KEF fjölskyldan komu saman til að fagna þessum stóra áfanga.
Lúðrasveit Reykjanesbæjar lék fyrir gesti og skapaði einstaklega hlýlega og hátíðlega stemningu á svæðinu.
Vatnsnes er hús með mikla sögu og sterkan karakter og það fyllir okkur stolti að sjá það fá nýtt líf á nýjan leik. Við erum ótrúlega spennt fyrir framtíðinni og hlökkum til að sjá húsið lifna við með menningu, tónlist, viðburðum og mannlífi sem verður bæði bænum og samfélaginu öllu til sóma.
Tónlistin sameinaði kynslóðir
Kvölddagskráin á Vori á Vatnsnesi fór sannarlega fram úr okkar væntingum og það var magnað að sjá fólk á öllum aldri safnast saman við Vatnsnes til að njóta tónlistar, stemningar og samveru í hjarta Reykjanesbæjar.
Tónleikarnir voru sérstök ferð í gegnum tónlistarsögu Keflavíkur þar sem gullöld bítlabæjarins mætti nútímanum í einstakri kvöldstund við sjávarsíðuna. Jakob Frímann Magnússon stýrði kvöldinu af miklum glæsibrag og tengdi saman tónlistina, sögurnar og menningararf bæjarins á einstaklega hlýjan og skemmtilegan hátt.
Sérstakur hápunktur kvöldsins var þegar hin goðsagnakennda hljómsveit Óðmenn kom saman á ný eftir margra ára hlé. Endurkoma sveitarinnar vakti mikla athygli enda á hún stóran sess í tónlistarsögu Keflavíkur og íslenskrar dægurtónlistar.
Með Óðmönnum komu fram sonur Péturs Östlund og einnig sonur Jóhanns G. Jóhannssonar í einstaklega tilfinningaþrungnu atriði. Jakob Frímann sagði frá því þegar Jóhann kynntist þessum „týnda syni“ sínum skömmu fyrir andlát sitt og vakti það mikla athygli að sonurinn hefur nær nákvæmlega sömu rödd og faðir hans. Það voru sannarlega sérstök augnablik þegar hann flutti lög föður síns með gömlu hljómsveitinni hans á sviðinu við Vatnsnes.
Tónlist Hljóma fékk einnig stórt hlutverk á tónleikunum og komu þar fram meðal annars Karl Hermannsson, Eggert Kristinsson, Rúnar Júlíusson, Baldur Guðmundsson og Sindri Baldursson. Með þeim á sviði var söngkonan Shady Owens sem flutti hið sígilda lag Ég elska alla og skapaði einstaka stemningu meðal gesta.
Einnig stigu á svið Sigríður Thorlacius, Sigurður Guðmundsson og Guðmundur Óskarsson úr sveitinni GÓSS sem fluttu lög Ellýjar og Vilhjálms Vilhjálmssonar við frábærar undirtektir. Þá komu einnig fram Magnús og Jóhann og rifjuðu upp tónlist sem tengist sögu bæjarins sterkum böndum.
Keflvíkingarnir Ásgeir Trausti og Valdimar Guðmundsson stigu svo á svið síðar um kvöldið og héldu áfram að magna upp stemninguna við Vatnsnes. Valdimar sló svo botninn í dagskrána áður en glæsileg flugeldasýning Björgunarsveitar Suðurnesja lýsti upp himininn og setti punktinn yfir i-ið á einstakri afmælishátíð Hótel Keflavíkur.
Þakklæti fyrir stuðninginn og fallegar kveðjur
Í tilefni af 40 ára afmæli Hótel Keflavíkur bárust okkur einnig fjölmargar fallegar afmæliskveðjur í Víkurfréttum og Morgunblaðinu sem okkur þykir afar vænt um.
Við viljum sérstaklega þakka eftirfarandi fyrirtækjum fyrir stuðninginn og hlý orð í okkar garð:
Bílasprautun Bílakjarninn, Blue Car Rental, Skólamatur, Flísabúðin, Sauna.is, Betri Bær, Nesraf, Nortek, Securitas, Danól, Mekka, Bus4U, Óskaskrín, Humarsalan, Kristall, Víkurfréttir, Jötuntak, Segna, SS, Jees Arkitektar, Garri, Ísleifur, Lagnaþjónusta Suðurnesja, SB Málun, Airport Associates, Casa, Litla Brugghúsið, Fastus, Steingrímsen járnsmiðja, Steinlausnir, Aðalstöðin, Ölgerðin, Dineout, Sporthúsið, GODO, ÓJ&K – Ísam, Prentmet Oddi og Golfklúbbur Suðurnesja.
Við kunnum virkilega að meta hlý orð og stuðning frá fólki og fyrirtækjum sem hafa verið hluti af ferðalaginu okkar í gegnum árin.
Hjartans þakkir
Við hjá Hótel Keflavík erum ótrúlega þakklát öllum þeim sem komu að hátíðinni, mættu á viðburði og fögnuðu þessum stóra áfanga með okkur.
Vor á Vatnsnesi var fyrir okkur miklu meira en afmælishátíð. Hún var áminning um hvað samfélagið okkar er einstakt og hversu mikið hægt er að skapa þegar fólk kemur saman með gleði, samstöðu og jákvæðni að leiðarljósi.
Við erum ótrúlega spennt fyrir framtíðinni og þakklát fyrir allar fallegu viðtökurnar. Það hefur verið sérstaklega gaman að heyra hversu margir vilja sjá Vor á Vatnsnesi halda áfram að þróast og verða áfram skemmtilegur hluti af menningar- og bæjarlífi Reykjanesbæjar.
Takk fyrir okkur.

