Listin að njóta

KEF spa

KEF SPA

Lúxus og vellíðan rétt hjá Keflavíkurflugvelli


Stígðu inn í heim vellíðunar hjá KEF SPA & Fitness, glæsilegri heilsulind á Hótel Keflavík, aðeins 5 mínútum frá Keflavíkurflugvelli. Hér sameinast nútímaleg hönnun og íslensk náttúra í fallegu og fáguðu umhverfi sem býður upp á endurnærandi og eftirminnilegar stundir.

Rýmin eru útfærð með vönduðum smáatriðum, meðal annars Versace-flísum og hágæða húsgögnum og hönnun, sem skapa einstaka heild þar sem þægindi, næði og gæði njóta sín til fulls. Fullkomin umgjörð fyrir rómantísk kvöld, vinahópa og góða stemningu. 

Opnunartímar

Virka daga · 06:00 – 21:00

Helgar · 08:00 – 21:00

Njóttu í glæsilegu umhverfi þar sem falleg hönnun mætir sjarma íslenskrar náttúru.

LISTIN AÐ NJÓTA


Upplifanir KEF SPA

Hjá KEF SPA & Fitness bjóðum við upp á fjölbreyttar leiðir til að njóta heilsulindar, heilsuræktar og upplifunar. Hér fyrir neðan finnur þú allar leiðir sem í boði eru og getur valið þá sem hentar þér best.



Með öllum aðgöngum í heilsulindina er innifalið afnot af slopp, handklæði og inniskóm, auk aðgengis að hágæða vörum frá Blue Lagoon Science, þar á meðal sjampói, hárnæringu, sápu og kremi í klefunum.

KEF Fitness

Aðgangur að heilsurækt.
6800 ISK
KEF SPA & Fitness

Aðgangur að heilsulind og heilsurækt.
8800 ISK
Gull upplifun

Aðgangur að heilsulind og heilsurækt ásamt drykk á Versace Bar.
10800 ISK
Versace upplifun

Aðgangur að heilsulind og heilsurækt með aukinni lúxusupplifun. Drykkur hússins á Versace Bar og afnot af Versace slopp á meðan dvöl stendur.
14800 ISK
KEF SPA & Bröns

Fullkomin samsetning af slökun og veitingum. Aðgangur að heilsulind og heilsurækt ásamt einum rétti af bröns matseðli. Bröns er opinn laugardaga og sunnudaga kl. 11:30–15:00. Framreitt í spa-sal eða á KEF Restaurant.
12.900 ISK
Nuddsvítan

Slökun og meðferð í hæsta gæðaflokki með aðgangi að heilsulind og heilsurækt inniföldum. Einstaklingsnudd er í boði í 60 mínútur frá 22.800 kr og 90 mínútur á 29.800 kr. Paranudd er í boði á 49.800 kr.
Einstaklingsnudd: 60 mín frá 22.800 kr / 90 mín 29.800 kr. Paranudd: 49.800 kr.

KEF Spa aðstada


Þú getur bókað rútu fyrir allt að 20 manns til og frá Suðurnesjum eða á höfuðborgarsvæðinu. Hentar einstaklega vel fyrir skemmtilega vinahópa, gæsanir og steggjanir svo eitthvað sé nefnt. 


Frekari upplýsingar og verð hjá [email protected]

Komdu í stíl

Lúxusrúta fyrir hópa

MEÐLIMAKLÚBBUR KEF SPA & FITNESS


KEF SPA einkaklúbbsaðild

KEF SPA er opið fyrir alla – en hannað fyrir heimamenn. Það hentar fyrir einstaklinga sem vilja rækta líkama sinn og huga að heilsu dagsdaglega sem og þeim sem vilja gefa sér tíma til að njóta og slaka á í góðum félagsskap. Hægt er að gerast meðlimur í einkaklúbb okkar og þar sem þú færð óheftan aðgang að heilsulindinni, líkamsræktinni og öllum þeim fríðindum og þjónustu sem því fylgir.


Uppgötvaðu réttu áskriftarleiðina fyrir þína heilsu og vellíðan.



Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar.

KEF SPA Menu