Sagan okkar – 40 ár af gestrisni, gæðum og upplifun á Reykjanesi

Lilja Karen Steinþórsdóttir • 27. maí 2026

Sagan okkar - 40 ár af gestrisni, gæðum og upplifun á Reykjanesi 

Frá litlu fjölskyldureknu hóteli árið 1986 hefur Hótel Keflavík þróast í einn þekktasta áfangastað Reykjaness fyrir gistingu, heilsulind og veitingaupplifun.


Saga Hótel Keflavík hófst árið 1986 þegar fjölskylda með stórar hugmyndir opnaði lítið hótel í hjarta Keflavíkur. Á þeim tíma var ferðaþjónusta á Íslandi allt önnur en hún er í dag og fáir hefðu líklega trúað því að litla hótelið myndi síðar verða eitt þekktasta hótel landsins utan höfuðborgarsvæðisins.


Í dag er Hótel Keflavík vinsæll kostur fyrir bæði erlenda ferðamenn og Íslendinga sem vilja njóta góðrar gistingar á Reykjanesi. Margir velja hótelið vegna nálægðarinnar við Keflavíkurflugvöll, aðrir koma sérstaklega til að njóta heilsulindarinnar, veitingastaðsins eða fyrir veislur og aðra viðburði.

Hótelið hefur stækkað mikið á síðustu fjórum áratugum en fjölskylduandinn hefur alltaf haldist sá sami. Frá upphafi hefur áherslan verið á persónulega þjónustu og að taka vel á móti fólki. Það er einmitt það sem margir gestir nefna þegar þeir lýsa dvöl sinni hjá okkur.


Aðeins 5 mínútur frá Keflavíkurflugvelli

Ein stærsta sérstaða Hótel Keflavíkur er staðsetningin. Hótelið er aðeins um fimm mínútur frá Keflavíkurflugvelli og því einstaklega hentugt fyrir þá sem eru að lenda seint, fara snemma eða vilja þægilegan upphafs- eða endapunkt á Íslandsferðinni.

Margir vinsælir áfangastaðir eru einnig í stuttri akstursfjarlægð frá hótelinu, þar á meðal Bláa Lónið, Reykjanesviti, Gunnuhver og eldgosasvæðin á Reykjanesi. Reykjavík er svo aðeins um 40 mínútna akstur frá hótelinu.


KEF SPA & Fitness

Hótel Keflavík opnaði á síaðsta ári glæsilega heilsulind þar sem lögð er áhersla á vellíðan, fallegt umhverfi og rólega stemningu.

Í KEF SPA & Fitness geta gestir meðal annars notið heitra potta, saunu, innrauðs klefa, snjóherbergis og líkamsræktar. Einnig er þar notaleg aðstaða til slökunar og úrval af vönduðum vörum í KEF Shop þar á meðal snyrtivörur frá Blue Lagoon Science eða vörur frá 66 norður svo eitthvað sé nefnt.

Heilsulindin hefur notið mikilla vinsælda meðal þeirra sem vilja slaka á, njóta rómantískrar helgar eða gera vel við sig í spaferð á Reykjanesi með vinahópnum.


KEF Restaurant – vinsæll veitingastaður í Keflavík

KEF Restaurant hefur í gegnum árin skapað sér sterkt orðspor sem einn vinsælasti veitingastaðurinn í Keflavík og á Reykjanesi. Þar er lögð áhersla á vandaðan mat, gott hráefni, hlýlegt andrúmsloft og persónulega þjónustu.

Hvort sem gestir koma í kvöldverð, helgarbröns eða notalega stund með vinum hefur KEF Restaurant verið vinsæll kostur hjá bæði heimamönnum og ferðamönnum sem leita að góðum veitingastað nálægt Keflavíkurflugvelli.

Við hlið veitingastaðarins er Diamond Lounge, glæsilegur vín- og kokteilabar með notalegri stemningu og fjölbreyttu úrvali drykkja þar er einnig KEF Café þar sem boðið er upp á kaffi á staðnum eða til að taka með, bakkelsi og morgunverð í notalegu umhverfi rétt hjá Keflavíkurflugvelli.


Diamond Suites

Á efstu hæð Hótel Keflavíkur eru Diamond Suites, glæsilegar lúxussvítur sem hafa vakið athygli bæði hér heima og erlendis.

Svíturnar eru hannaðar fyrir þá sem vilja meiri ró, næði og upplifun þar sem ekkert er til sparað. Þar sameinast falleg hönnun, þægindi og persónuleg þjónusta á einstakan hátt.


Meira en bara hótel

Í dag er Hótel Keflavík orðið miklu meira en hefðbundið flugvallahótel. Hingað kemur fólk til að slaka á, njóta góðs matar, fara í heilsulind, halda fundi, fagna sérstökum tilefnum eða einfaldlega eiga notalega stund á Reykjanesi.

Við erum afar stolt af 40 ára sögu okkar og þakklát öllum þeim sem hafa verið hluti af ferðalaginu í gegnum árin. Um leið hlökkum við til framtíðarinnar og að halda áfram að þróa Hótel Keflavík með sömu gestrisni og metnaði og frá fyrsta degi.


Velkomin til okkar.

Velkomin á Hótel Keflavík.


Njóttu rétt hjá útlöndum. 


Recent Posts