15-17. maí 2026
40 ára afmælishátíð Hótel Keflavík

Í tilefni 40 ára afmælis Hótel Keflavíkur þann 17. maí bjóðum við bæjarbúa og gesti hjartanlega velkomna á glæsilega afmælishátíð dagana 15.–17. maí. Aðalviðburður hátíðarinnar verða laugardaginn 16. maí svo passaðu að taka daginn frá.
Framundan er lífleg og fjölbreytt helgi þar sem skemmtihlaup, list, tónlist og einstakar upplifanir mætast í skemmtilegri stemningu fyrir alla fjölskylduna.
Vor á Vatnsnesi er nýr árlegur viðburður í Reykjanesbæ – notaleg bæjarhátíð sem við ætlum að byggja upp til framtíðar. Í ár gerum við þó sérstaklega vel við okkur og fögnum 40 ára afmælinu okkar með enn veglegri dagskrá. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og höfum gaman saman!
Það er frítt inn fyrir alla - Verið velkomin á Vatnsnes.
Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar
40
Ár í þjónustu gesta
Frá 1986 til 2026 – fjölskylduarfur og framtíðarsýn
Dagskrá
Þrír dagar af gleði
Loading items…
No items found.

LISTIN AÐ NJÓTA
Afmælistilboð í maí
Nýr matseðill á KEF Restaurant
This is paragraph text. Click it or hit the Manage Text button to change the font, color, size, format, and more. To set up site-wide paragraph and title styles, go to Site Theme.
New Paragraph
New Title
Afmælismatseðill
This is paragraph text. Click it or hit the Manage Text button to change the font, color, size, format, and more. To set up site-wide paragraph and title styles, go to Site Theme.
New Paragraph
New Title
Afmælisborgari
This is paragraph text. Click it or hit the Manage Text button to change the font, color, size, format, and more. To set up site-wide paragraph and title styles, go to Site Theme.
New Paragraph
New Title
1986 Kokteill
This is paragraph text. Click it or hit the Manage Text button to change the font, color, size, format, and more. To set up site-wide paragraph and title styles, go to Site Theme.
New Paragraph
New Title
Gjafabréf
This is paragraph text. Click it or hit the Manage Text button to change the font, color, size, format, and more. To set up site-wide paragraph and title styles, go to Site Theme.
New Paragraph
New Title
Þriggja rétta kvöldmatur
40 ára afmælisseðill
Loading items…
No items found.
Afmælisréttir
"40 & Fabulous"
Afmælisborgari
Nautaribeye, klettasalat, tómatur, sultaðir sveppir, rösti kartafla, súrar gúrkur, trufflu majÓ, bérnaise.
5,600 kr
Afmælisréttir
Afmæliskaka
Frönsk súkkulaðikaka, jarðarber, karamellu-súkkulaði ganache, heslihnetumulningur, vanilluís
2,800 kr.

laugardaginn 16. maí 2026 kl. 20:30–22:40
16. maí | Kl. 11:00 | Vatnsnestún
Tónlistarveisla -
vor á vatnsnesi
Tónlistarhátíð helguð Bítlabænum
- vöggu íslenska bítsins -
Á þessari einstöku tónlistarhátíð verður saga Bítlabæjarins Keflavíkur heiðruð með lögum og minningum um nokkrar af áhrifamestu röddum og hljómsveitum íslenskrar tónlistarsögu.
Kvöldið verður tileinkað Óðmönnum, Hljómum, Magnúsi og Jóhanni og systkinunum Elly og Vilhjálmi Vilhjálms. Þetta eru nöfn sem mótuðu íslenska dægurtónlist, komu Suðurnesjum á tónlistarkortið og skildu eftir sig lög sem hafa lifað með þjóðinni í áratugi.
Auk kemur stærsta rõdd okkar í dag við sõgu þegar hinn frábæri Valdimar Guðmundsson setur punktinn yfir i - ið undir lok tónleikanna.
Óðmenn voru frumkvöðlar í íslensku rokki, með tónlist sem var á sínum tíma djörf, ný og langt á undan sinni samtíð.
Hljómar frá Keflavík kveiktu bítlaæðið á Íslandi og urðu ein áhrifamesta hljómsveit landsins.
Magnús og Jóhann gáfu þjóðinni ótal sígild lög með hlýjum röddum, fallegum textum og einstökum lagasmíðum.
Ellý og Vilhjálmur eru síðan meðal ástsælustu systkina íslenskrar tónlistarsögu, raddir sem snerta hjörtu kynslóða enn þann dag í dag.
Um Valdimar þarf ekki að fjõlyrða. Hann er okkar stærsta stolt í dag, með sinni himnesku sõngrõdd og gullfallegu lagasmíðum.
Kvöldið tengir sumsé fortíð og nútíð þegar Valdimar og Ásgeir úr hljómsveitinni Valdimar stíga á svið. Frá stofnun sveitarinnar hefur hún skipað sér í fremstu röð íslenskrar tónlistar með lögum sem þjóðin hefur tekið opnum örmum. Með sinni hlýju, melódísku nálgun og sterkum textum færa þeir tónlistararfinn áfram inn í nútímann.
Á sviðinu koma saman goðsagnir, heiðursgestir og nýjar raddir sem halda arfinum lifandi. Þetta verður kvöld fullt af sögum, tilfinningum, gleði og tónlist sem á djúpar rætur í hjarta Suðurnesja.
DAGSKRÁIN:
Laugardaginn 16.maí 2026
Kl. 20:00 - 22:40
Frítt inn fyrir alla
ÓÐMENN
Shady Owens söngkonan eina og sanna
Magnús Kjartansson Hammond organisti
Finnur Torfi Stefánsson gítarleikari
Sebastían Pétursson Östlund trommuleikari
Sérstakir heiðursgestir tónleikanna verða Pétur Östlund
og .....Týndi sonurinn!
Í stað Jóhanns G. Jóhannssonar sáluga stígur nú í fyrsta skipti á svið með Óðmönnum
nýuppgötvaður sonur hans - listamaðurinn Id. - öðru nafniu Ívar Davíð !
SÖNGVAR HLJÓMA
Erlingur Björnsson gítarleikari
Karl Hermannsson söngvari
Eggert Kristinssoon trommuleikari
Júlíus Guðmundsson Rúnars Júlíussonar bassaleikari
Baldur Guðmundsson Rúnars Júlíussonar hljómborðsleikari
MAGNÚS og JÓHANN
söngvaskáldin einu, sönnu og sígildu!
ELLY og VILHJÁLMUR
Suðurnesjasystkinin ástsælu
hér í Í tõfrandi flutningi Sigríðar Thorlacius, Sigurðar Guðmundssonar og Góss hópsins.
VALDIMAR og ÁSGEIR
Keflavíkingarnir þeir Ásgeir og Valdimar stíga einir á svið og flytja sín þekktustu lög
Komdu og vertu með – þetta verður einfaldlega geggjað
ÓÐMENN

Óðmenn voru í raun tvær ólíkar hljómsveitir, báðar stofnaðar af Jóhanni G. Jóhannssyni. Sú fyrri varð til í Keflavík árið 1966 og spilaði bítlatónlist, bæði frumsamið efni og erlenda slagara. Hún náði fljótt vinsældum, kom fram í fyrstu sjónvarpsútsendingum landsins og gaf sjálf út plötu 1967. Þrátt fyrir góðar viðtökur leystist sveitin upp 1968 þegar lykilmeðlimir færðu sig yfir í önnur verkefni.
Árið 1969 stofnaði Jóhann nýja útgáfu af Óðmönnum, gjörólíka þeirri fyrri. Nú var tónlistin þyngri og framúrstefnulegri, í anda prog- og blúsrokks. Sveitin var á undan sinni samtíð á Íslandi, bæði í hljómi og textagerð, þar sem hún fjallaði um samfélagsmál og stríð – ólíkt hefðbundnum popptextum þess tíma.
Óðmenn gáfu út tímamótaplötur, þar á meðal fyrstu íslensku stereo-smáskífuna og síðar fyrsta tvöfalda albúm íslenskrar tónlistarsögu árið 1970. Þrátt fyrir frábæra dóma náði tónlistin ekki mikilli útbreiðslu á sínum tíma, meðal annars vegna þess að hún þótti ekki „dansvæn“.
Sveitin starfaði stutt en skildi eftir sig djúp spor. Hún lagði sitt af mörkum til þróunar íslensks rokks og telst í dag frumkvöðlasveit sem var einfaldlega á undan sínum tíma.
Upplýsingar fengnar frá glatkistan.com
MAGNÚS & JÓHANN

Magnús og Jóhann eru eitt þekktasta lagahöfundapar íslenskrar tónlistarsögu. Þeir hófu samstarf sitt seint á sjöunda áratugnum eftir að hafa kynnst í hljómsveit, en slógu fyrst í gegn sem dúó árið 1971 með þjóðlagapoppi í anda Simon & Garfunkel.
Fyrsta plata þeirra, Magnús og Jóhann (1972), fékk góða dóma og innihélt m.a. lagið Mary Jane, sem lifir enn í dag. Í kjölfarið reyndu þeir fyrir sér erlendis, tóku upp tónlist í Bretlandi og stofnuðu hljómsveitina Change, en þegar sá draumur rann út um miðjan áttunda áratuginn sneru þeir sér meira að lagasmíðum og verkefnum fyrir aðra.
Samstarfið lifnaði aftur 1979 og þeir gáfu út plötur, héldu tónleika og byggðu upp sterka stöðu sem flytjendur og lagahöfundar. Á tíunda áratugnum náðu þeir aftur mikilli athygli með plötum eins og Lífsmyndir, þar sem lög á borð við Ást við fyrstu sýn urðu sígild.
Þótt þeir hafi oft farið hvor í sína áttina hafa þeir alltaf fundið leið til að vinna saman á ný. Á síðari árum hafa þeir komið saman í tónleikum og útgáfu, m.a. með safnplötunni Ástin og lífið og nýrra efni.
Ferill þeirra spannar áratugi, og áhrif þeirra á íslenska tónlist eru djúp – bæði sem flytjendur og höfundar margra af ástsælustu lögum þjóðarinnar.
Upplýsingar fengnar frá glatkistan.com
HLJÓMAR

Hljómar frá Keflavík eru ein áhrifamesta hljómsveit íslenskrar poppsögu. Sveitin var stofnuð árið 1963 og varð fljótt tákn nýrrar tónlistarbylgju á Íslandi, þar sem áhrif Bítlanna, rokksins og tónlistarstrauma frá Keflavíkurflugvelli blönduðust íslenskri sköpun.
Hljómar slógu í gegn með lögum á borð við Bláu augun þín, Fyrsti kossinn, Heyrðu mig góða, Sveitapiltsins draumur, Þú og ég, Ástarsæla og Lífsgleði. Þeir voru meðal fyrstu íslensku hljómsveitanna til að gefa út eigin popptónlist, bæði smáskífur og breiðskífur, og ruddu brautina fyrir nýja kynslóð íslenskra tónlistarmanna.
Úr Hljómum spruttu síðar stór nöfn eins og Thor’s Hammer, Trúbrot og Lónlí blú bojs, auk þess sem sveitin markaði upphaf ferils lykilmanna á borð við Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíusson, Engilbert Jensen, Shady Owens og Björgvin Halldórsson.
Þótt Hljómar hafi starfað með hléum og ekki lengi í einu, urðu áhrif þeirra gríðarleg. Þeir komu Keflavík á tónlistarkortið, mótuðu íslenska bítla- og poppmenningu og skildu eftir sig lög sem hafa lifað með þjóðinni í áratugi.
Saga Hljóma er því ekki aðeins saga einnar hljómsveitar, heldur stór kafli í sögu íslenskrar dægurtónlistar.
Upplýsingar fengnar frá glatkistan.com
ELLY & VILHJÁLMUR

Elly og Vilhjálmur Vilhjálms eru meðal ástsælustu systkina íslenskrar tónlistarsögu. Þau fæddust í Merkinesi við Hafnir og urðu bæði þjóðþekkt fyrir einstakar raddir, hlýja túlkun og lög sem hafa lifað með þjóðinni í áratugi.
Elly Vilhjálms varð ein skærasta söngstjarna landsins á sjöunda áratugnum. Hún sló í gegn með lögum á borð við Ég vil fara upp í sveit, Vegir liggja til allra átta, Lítill fugl og Ég veit þú kemur. Hún var rómuð fyrir djúpa, fágaða og tilfinningaríka rödd og hefur oft verið kölluð ein af mestu söngdívum Íslands.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, eða Villi Vill, hóf feril sinn ungur og varð fljótt einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar. Með lögum eins og Vor í Vaglaskógi, Bíddu pabbi, Hrafninn, Ég labbaði í bæinn, Lítill drengur og Söknuður festi hann sig í sessi sem einstakur túlkandi, en einnig sem textahöfundur með sterka persónulega rödd.
Saman gáfu systkinin út vinsælar plötur sem urðu sígildar, þar á meðal jólaplötu sem hefur fylgt íslenskum jólum í kynslóðir. Rödd þeirra saman skapaði einstaka hlýju og nánd sem enn lifir í íslenskri tónlistarmenningu.
Þau áttu bæði flókna og á köflum erfiða ævi, en tónlistin lifir áfram. Elly og Vilhjálmur skildu eftir sig ómetanlegan arf og eru enn í dag tákn um fegurð, tilfinningu og gullaldarhljóm íslenskrar dægurtónlistar.
Keflvíkingarnir Valdimar og Ásgeir stofnuðu hljómsveitina Valdimar árið 2009 og varð hún fljótt að fullskipuðu sex manna bandi. Fyrsta plata sveitarinnar, Undraland, var tekin upp og gefin út af Geimsteini árið 2010.
Upplýsingar fengnar frá glatkistan.com
VALDIMAR & ÁSGEIR

Valdimar varð fljótt ein vinsælasta hljómsveit landsins og varð lagið Yfirgefinn eitt af vinsælustu lögum ársins 2011. Í kjölfarið hafa þeir gefið út þrjár plötur til viðbótar: Um stund (2012), Batnar útsýnið (2014) og Sitt sýnist hverjum(2018).
Sveitin hefur komið víða fram hérlendis og spilað á helstu tónlistarhátíðum landsins eins og Iceland Airwaves, Bræðslunni, Aldrei fór ég suður ofl.
16. maí | Kl. 11:00 | Vatnsnestún
KEF Moët Kampavínshlaupið
KEF Moët Kampavínshlaupið er einstök upplifun þar sem gleði, stemning og samvera eru í forgrunni.
Í fyrra tóku yfir 100 manns þátt og uppselt var á svipstundu – margir komust því miður ekki að þrátt fyrir mikinn áhuga. Stemningin var algerlega geggjuð og eftirspurnin meiri en við áttum von á. Í ár höfum við tekið þetta skrefinu lengra – enn glæsilegri dagskrá, veglegri vinningar, meiri stemning og enn meira fjör. Tryggðu þér sæti tímanlega!
Að auki verðum við með Kampavínsspretthlaup sem hver sem er getur tekið þátt í án skráningar. Það hefst beint eftir skemmtihlaupið. Hversu mikið kampavín er eftir í glasinu eftir að þú tekur sprettinn?
Í ár bættum við einnig við verðlaunum fyrir besta búninginn. Það er engin nauðsyn að mæta uppstrílaður - bara fyrir þá sem vilja. Þú getur t.d. smellt þér í einn sumarlegan kjól enda einstaklega viðeigandi fyrir kampavínshlaup eða skreytt þig í skærum skemmtilegum litum. Bara leyfa hugmyndarfluginu að ráða.
Hvort sem þú ert að mæta til að hlaupa, dansa eða bara njóta dagsins, þá er þetta viðburður fyrir alla. DJ Sakki heldur uppi stemningunni frá kl. 10:00–13:00 og danspartýið við Vatnsnes / Apré Run Rave verður opið öllum sem vilja taka þátt og hafa gaman saman.
Það þarf ekki að hlaupa til að vera með – bara mæta og njóta og allir eru velkomnir í kampavínsspretthlaupið og danspartýið. Komdu og upplifðu einstaka stemningu með okkur við Vatnsnes.
Komdu og vertu með – þetta verður einfaldlega geggjað
Dagskrá
10:00 – Mæting við Vatnsneshúsið, Vatnsnesvegi 8 og upphitun.
DJ Sakki kemur ykkur í gírinn.
11:00 – KEF Moët Kampavínshlaupið (5 km skemmtihlaup)
- Kampavínsdrykkjarstöðvar við skráningu og við marksvæði í Vatnsnesi. Á hlaupaleiðinni verður enn ein drykkjarstöðin þar sem þátttakendur geta svalað þorsta sínum. Stemning alla leið!
- Við marklínu fá allir þátttakendur medalíu og 100 fyrst veglegan gjafapoka. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin, besta búninginn og dregið verður úr fjölda glæsilegra happdrættisverðlauna!
- Skráning er nauðsyn. Sjá skráningarlinka hér fyrir neðan. Athuga 20 ára aldurstakmark.
- Vinir okkar í Björgunarsveit Suðurnesja mun standa vörð um hlaupaleiðina.
12:15 – Kampavínsspretthlaup (40 metrar fyrir 40 ár) Sá sem nær í mark með mest kampavín í glasinu hlýtur titilinn Kampavínsspretthlaupari KEF (engin skráning nauðsynleg – allir velkomnir. Ath 20 ára aldurstakmark)
12:30 – Danspartý við Vatnsnes / Après Run Rave með DJ Sakki.
Allir velkomnir þó þú sért þáttakandi í skemmtihlaupinu eður ei.
13:00 – Verðlaunaafhending
Verðlaun fyrir:
- 1., 2. og 3. Sæti KEF Moet Kampavínshlaupsins
- Besta skemmtilega og sumarlega búninginn
- Kampavínsspretthlaupari KEF
- Happdrætti fyrir fullt af heppnum þátttakendum skemmtihlaupsins
Upplýsingar
- Staðsetning: Vatnsnes, Vatnsnesvegi 8, 230 Keflavík
- Fyrstu 100 í mark fá veglega gjafapoka
- Allir þátttakendur fá medalíu
- Þátttökugjald: 1.986 kr. (í tilefni af 40 ára afmæli Hótel Keflavíkur – stofnað 1986)
- Aldurstakmark: 20 ár
- Skráning fer fram á www.kef.is/40
Stemningin heldur áfram
Að hlaupi loknu tekur gleðin við þar sem tónlist, dans og góðir drykkir skapa einstaka upplifun. Þetta er dagur til að sleppa sér, hlæja og njóta með góðu fólki.
Happy hour verður á barnum í kjölfar hlaupsins og lífleg stemning bæði við Vatnsnes og á KEF Restaurant. Við mælum með að bóka borð tímanlega til að tryggja sér sæti og njóta dagsins til fulls.
Komdu og vertu með – þetta verður einfaldlega geggjað
Praktísk atriði
Við viljum vekja athygli á því að vegir við Vatnsnes verða með léttar lokarnir fyrir umferð frá kl 08-00 þann 16. maí til að passa upp á öryggi gesta hátíðarinnar.
Við mælum með að fólk leggi bílum sínum við sjávarsíðuna við Ægissíðu og rölta þaðan upp Básveg að Vatnsnesi.

16. maí kl 14:00-17:00
16. maí | Kl. 11:00 | Vatnsnestún
Hoppukastalar og götubiti við Vatnsneshúsið
Frítt fyrir alla
Það verður líf og fjör við Vatnsneshúsið á laugardaginn þegar Kastalar.is mæta með hoppukastala og gleði fyrir börnin! Frá kl. 14:00–17:00 geta börn á öllum aldri komið og hoppað, leikið og skemmt sér – og það kostar ekki neitt.
Dons Donuts götubiti mæta einnig á svæðið og selja kleinuhringi drauma ykkar!
Þetta er gjöf frá Hótel Keflavík til allra barna – því ekkert gleður okkur meira en að sjá þau hlæja og hafa gaman saman.
Frábær fjölskyldustund sem hluti af afmælisdagskrá Hótelsins – öll börn eru hjartanlega velkomin!
Við verðum staðsett við Vatnsneshúsið, Vatnsnesvegi 8, 230 Keflavík við hliðina á Hótel Keflavík
16. maí kl 14:00
Laugardaginn 17. maí | Kl. 12:00–16:00
Leiksýning fyir börnin á vegum Leikhópsins Lottu
Frítt fyrir alla
Við bjóðum ykkur í einstakt ævintýri fyrir alla fjölskylduna þegar Leikhópurinn Lotta á útisviðið við Vatnsneshúið með lifandi og glaðvært atriði úr Ævintýraskógi Lottu, fullt af sprelli, söng og fjöri fyrir börn á öllum aldri! Eftir leiksýninguna verða hoppukastalar á svæðinu og frítt fyrir alla að vera með.
Leiksýningin hefst kl. 14:00
Útisvið við Vatnsneshúsið
Vatnsnesvegi 8, 230 Keflavík
Við mælum með að bóka borð í fjölskyldubröns á KEF Restaurant samhliða en bröns er í boði allar helgar 11:30-15:00
Komdu með fjölskylduna í töfraheim Lottu og njóttu girnilegs bröns á sama tíma – Höfum gaman saman á KEF.

16. maí kl 14:00-17:00
16. maí | Kl. 11:00 | Vatnsnestún
Opið hús vatnsnes
Steinþór Jónsson og Hildur Sigurðardóttir bjóða gestum og gangandi velkomna í opið hús í Vatnsnesi, þar sem hægt er að skoða þær breytingar og endurbætur sem þegar eru komnar vel á veg.
Á sama tíma verður verður listasýning á Vatnsnesi. Málverk í einkaeigu Steinþórs og Hildar auk annara velunnara húsins. Listamenn á borð við Karólínu Lárusdóttur, Eirík Smith, Jón Sigurðsson, Stephen William og fleiri.
16. maí kl 15:00
Laugardaginn 17. maí | Kl. 12:00–16:00
Lúðrasveit Reykjanesbæjar
Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar stígur á útisviðið og spilar nokkur vel valin lög og setur tóninn með krafti og gleði!
Lúðrasveitin samanstendur af hæfileikaríkum ungmennum úr bænum og við erum stolt af því að fá þau til að leika fyrir gesti afmælishátíðarinnar okkar – og fagna með tónlist á þessum skemmtilega og líflega degi.


16. maí kl 22:40
Laugardaginn 17. maí | Kl. 12:00–16:00
Flugeldasýning
Björgunarsveitin Suðurnes mun slútta afmælishátíðinni með glæsibrag og lýsa upp himininn með fallegum flugeldum í kjölfar Tónleikarveislu Vor á Vatnsnesi.
Allir velkomnir að koma og njóta með okkur.
17. maí
Vöfflukaffi á KEF Cafe
Vöfflukaffi í tilefni 40 ára afmælis Hótel Keflavík 17. maí milli kl 11:30-17:30
Spes afmælisseðill bara þennan dag.
Loading items…
No items found.


15.-17. maí
Laugardaginn 17. maí | Kl. 12:00–16:00
Tilboð í verslunum Betri Bæjar alla helgina
Í tilefni af afmælishátíð Hótel Keflavík 15-17. maí bjóða vinir okkar úr Samtökunum Betri bæ upp á glæsilega afslætti víðsvegar í Reykjanesbæ.
Þetta er frábært tækifæri til að styðja við verslun í heimabænum og gera góð kaup í leiðinni!
Tilboð í verslunum – Vor á Vatnsnesi:
Hafnargata 15 (búðarheiti væntanlegt)
– 20% afsláttur af öllu
Brons
– Happy hour frá kl. 11:00–21:00
– 20% afsláttur af völdum kokteilum
A4
– 20% afsláttur af ferðavörum
Skóbúðin
– 20% afsláttur af öllum skóm
Marion Herrafataverslun
– 20% afsláttur af öllu
Palóma
– 20% afsláttur af fatnaði og skóm
Viney
– 20% afsláttur af völdum vörum
Reykjanes Optikk
- 25% afsláttur þann 16. maí af öllu (nema linsum)
Bústoð
- 20% afslátt af allri gjafavöru og 10 - 40% afsláttur af völdum húsgögnum
15. maí og 17. maí
Laugardaginn 17. maí | Kl. 12:00–16:00
Frír afmælisfordrykkur fyrir alla gesti KEF SPA & Fitness
Allir þeir sem bóka sig í KEF SPA fá frían afmælisdrykk við komu
Bókaðu upplifun þína hér:
www.kefspa.is


15.-17. maí
Laugardaginn 17. maí | Kl. 12:00–16:00
Frítt í Duus Safnahús alla helgina
Í tilefni af 40 ára afmælishátíð Hótel Keflavík Vor á Vatnsnesi er gestum boðið frítt í Duus safnahús dagana 15.–17. maí á sýningar Byggðasafns Reykjanesbæjar, Eins manns rusl er annars gull og Fast þeir sóttu sjóinn - bátasafn Gríms Karlssonar og gestastofu Reykjaness UNESCO jarðvangs. Listasafn Reykjanesbæjar er lokað að þessu sinni vegna uppsetningar nýrrar sýningar.
Sjá nánar um Duus safnahús á
https://www.duushus.is/
16.maí kl 17-19
Laugardaginn 17. maí | Kl. 12:00–16:00
Vínsmökkun á Diamond Lounge
Vínsmakk í boði MEKKA Wines & Spirits þann 15.maí á milli kl. 17-19.
Stefán Ingi Guðmundsson vínþjónn kemur og kynnir vín og býður uppá smakk fyrir gesti KEF Restaurant.
Bókaðu borðið þitt hér:
https://www.dineout.is/is/kef/event/hotelkef40


17. maí kl 14
Laugardaginn 17. maí | Kl. 12:00–16:00
Vígsla Vatnsness
Vöfflukaffi á KEF Café 17. maí kl 11:30-17:00
Okkar nýjasta viðbót, Vatnsnes, verður formlega vígt af Steinþóri Jónssyni og Hildi Sigurðardóttur.

Tímabundnar götulokanir 16. maí
Vegna bæjarhátíðarinnar Vor á Vatnsnesi verða tímabundnar og léttar lokanir á hluta af Vatnsnesvegi, Básvegi og Bryggjuvegi laugardaginn 16. maí frá kl. 08:00–00:00.
Lokununum er ætlað að tryggja öryggi gesta yfir daginn, meðal annars vegna:
- skemmtihlaups um morguninn
- barnadagskrár, hoppukastala og leiksýningar
- tónleika og flugeldasýningar um kvöldið
Aðeins er um léttar lokanir að ræða og verður greið leið fyrir íbúa sem búa við göturnar sem og neyðarakstur. Starfsfólk og öryggisgæsla verða á svæðinu til að aðstoða eftir þörfum.
Við mælum með að leggja bílunum ykkar við sjávarsíðuna á Ægisgötu.
Við þökkum fyrir skilninginn og hlökkum til að taka á móti ykkur á Vor á Vatnsnesi
Myndir frá síðasta ári
Minningar frá Vatnsnesi
Hótel Keflavík · 40 ára
Við hlökkum til að sjá þig
Komdu og fagnað með okkur. Fjörutíu ár af minningum, gleði og þjónustu á Suðurnesjum. Höfum gaman saman!



