Sólmyrkvavika á KEF
Upplifðu sólmyrkvavikuna á Hótel KEF

Upplifðu sólmyrkvavikuna á Hótel KEF
Dagana 11.–15. ágúst verður sólmyrkvanum fagnað á Hótel KEF með góðum mat, frískandi drykkjum, slökun og sérstökum tilboðum.
Hótel KEF er í hjarta Keflavíkur, aðeins fimm mínútna akstur frá Keflavíkurflugvelli og í nokkurra mínútna fjarlægð frá viðburðum sólmyrkvadagsins í Reykjanesbæ. Hótelið er því tilvalinn viðkomustaður fyrir þá sem ætla að upplifa almyrkvann og allt það besta sem Reykjanes hefur upp á að bjóða.
Hvort sem þú vilt byrja daginn á veglegum morgunverði, slaka á í KEF SPA & Fitness eða setjast niður yfir góðum kvöldverði og kokteil að loknum eftirminnilegum degi tekur Hótel KEF vel á móti þér.
Sólmyrkvadekur í KEF SPA & Fitness
Byrjaðu daginn í kyrrðinni í KEF SPA & Fitness. Dagana 11.–15. ágúst verður 50% afsláttur af aðgangi frá kl. 06:00–15:00.
Í heilsulindinni er fjölbreytt aðstaða til slökunar, meðal annars heitur pottur, eimbað, þurrgufa, innrauður klefi, snjóherbergi, kaldur pottur og notalegt slökunarsvæði.
Eftir heimsóknina ertu endurnærður og tilbúinn að halda út í daginn, skoða náttúru Reykjaness og upplifa einstaka stemningu sólmyrkvadagsins.
Bókaðu upplifun þína hér á
www.kefspa.is
Góðan daginn KEF
Þú þarft ekki að gista á Hótel KEF til að njóta morgunverðarins. Veglegt morgunverðarhlaðborð hótelsins er opið öllum, alla daga frá kl. 05:00–10:00.
Dagana 11.–15. ágúst fá gestir sem heimsækja Reykjanes í tilefni sólmyrkvans 20% afslátt af morgunverðarhlaðborðinu.
Komdu við, njóttu góðs morgunverðar og safnaðu orku fyrir ævintýri dagsins.
Sérstakur sólmyrkvamatseðill á KEF Restaurant
KEF Restaurant býður upp á sérstakan tveggja rétta sólmyrkvamatseðil dagana 11.–15. ágúst. Á matseðlinum eru safaríkar lambalundir og KEF-tíramísú í eftirrétt. Verðið er aðeins 9.900 kr. á mann. Bókaðu borðið þitt hér á www.kefrestaurant.is
Eldhús KEF Restaurant verður opið til kl. 22:30 og Diamond Lounge til kl. 23:30 alla dagana. Það verður því nægur tími til að setjast niður, njóta góðs matar og ræða upplifun dagsins, jafnvel þótt ævintýrin standi fram eftir kvöldi.
Fimm stjörnu drykkir á Diamond Lounge
Á Diamond Lounge verður boðið upp á sérstakan drykkjaseðil með sumarlegum kokteilum og áfengislausum valkostum:
- Peach Please – 3.100 kr.
- Ástaraldingín, ferskjulíkjör, vanillusíróp og sódavatn.
- Starburst – 2.700 kr.
- Bleikt gin, jarðarber og vanillusíróp.
- Starburst 0% – 1.900 kr.
- Everleaf Mountain, jarðarber og vanillusíróp.
- Hugo Spritz – 2.900 kr.
- Ylliblómalíkjör, freyðivín og sódavatn.
- Hugo Spritz 0% – 1.900 kr.
- Áfengislaus ylliblómalíkjör, áfengislaust freyðivín og sódavatn.
Komdu þér vel fyrir og skálaðu fyrir einstökum degi í sólmyrkvastemningu á Diamond Lounge.
Tilboð á völdum gjafabréfum
Í tilefni sólmyrkvavikunnar verður einnig afsláttur af völdum gjafabréfum Hótel KEF.
Gjafabréfin fást í KEF Shop á www.kef.is/shop og í móttöku Hótel KEF. Þar má finna gjafir sem tengjast gistingu, góðum mat og slökun hjá KEF – eða eitthvað notalegt fyrir sjálfan sig.
Sólmyrkvagleraugu fyrir gesti okkar
Dagana 11.–12. ágúst mun Hótel KEF gefa gestum sínum frí sólmyrkvagleraugu á meðan birgðir endast.
Gleraugun verða í boði fyrir gesti Hótel KEF, KEF SPA & Fitness, KEF Restaurant, KEF Café og Diamond Bar, svo þeir geti notið þessa einstaka viðburðar á öruggan hátt. Við mælum með að gestir nálgist gleraugun tímanlega þar sem takmarkað magn verður í boði.
Myrkvastund í Reykjanesbæ
Miðvikudaginn 12. ágúst verður sérstök Myrkvastund haldin í Reykjanesbæ, aðeins í nokkurra mínútna fjarlægð frá Hótel KEF.
Myrkvastund fer fram á fjórum stöðum í bænum þar sem tónlist, fræðsla, veitingar og fjölbreytt afþreying skapa skemmtilega umgjörð fyrir fólk á öllum aldri. Þegar almyrkvinn nær hámarki fær náttúran sjálf sviðið og gestir verða saman vitni að einu stórbrotnasta sjónarspili hennar.
Viðburðirnir fara fram á eftirfarandi stöðum:
- Við Kamb í Innri-Njarðvík
- Í Skrúðgarðinum í Ytri-Njarðvík
- Við ráðhúsið á Ásbrú
- Í Holtunum ofan við Holtaskóla
Á hverjum stað verður sérstök dagskrá með plötusnúðum, tónlist, fræðslu og afþreyingu. Íþróttafélög á svæðinu sjá um veitingasölu og Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, leiðir gesti í gegnum upplifunina með fróðleik og áhugaverðri innsýn í almyrkvann.
Gestir eru hvattir til að kynna sér staðsetningarnar fyrir fram og velja þann stað sem hentar þeim best. Einnig er gott að taka með sér teppi eða útilegustóla, klæða sig eftir veðri og muna eftir viðurkenndum sólmyrkvagleraugum. Þar sem búast má við mikilli umferð er fólk hvatt til að ganga eða hjóla á viðburðina ef kostur er.
Nánari upplýsingar um Myrkvastund í Reykjanesbæ má finna á Facebook-viðburðinum: https://fb.me/e/8c9CPVte7
Gerðu sólmyrkvann að heilli upplifun
Sólmyrkvinn verður einstakur viðburður á Reykjanesi og á Hótel KEF getur þú notið dagsins frá morgni til kvölds. Byrjaðu á góðum morgunverði, slakaðu á í KEF SPA & Fitness og haltu síðan á einn af viðburðum Myrkvastundar í Reykjanesbæ.
Að myrkvanum loknum tekur KEF Restaurant á móti þér með góðum kvöldverði og á Diamond Bar getur þú skálað fyrir ógleymanlegri upplifun.
Frekari upplýsingar um viðburði, staðsetningar, kort, tímasetningar og allt sem tengist sólmyrkvanum á Reykjanesi má finna á vef Visit Reykjanes: https://www.visitreykjanes.is/en/experiences/total-solar-eclipse-on-the-reykjanes-peninsula-august-12-2026
Við hlökkum til að taka á móti þér á Hótel KEF dagana 11.–15. ágúst 2026.




