notalegt kaffihús í hjarta Keflavíkur
KEF Cafe
Byrjaðu daginn á KEF Café þar sem gott kaffi, sætir bitar og hlýleg stemning mætast á einum stað.
KEF Café er notalegt kaffihús í Keflavík og vinsæll áfangastaður fyrir heimafólk í Reykjanesbæ sem vill fá sér kaffi, bakkelsi, samlokur eða morgunverðarhlaðborð í góðu og rólegu umhverfi. Hér tekur á móti þér hlý og vinaleg þjónusta, hvort sem þú sest niður eða grípur með þér heitt kaffi og kruðerí út í daginn.
Hvort sem þú vilt hitta vini, vinna smá á tölvunni eða fá þér góðan kaffibolla í afslöppuðu umhverfi, þá er KEF Café frábær valkostur.
Notalegt kaffihús í hjarta Keflavíkur
Vöfflukaffi á Vatnsnesi 17. júní
Í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga flytur KEF Café sig út í hið sögufræga Vatnsnesshús þar sem við bjóðum upp á notalegt vöfflukaffi í fallegu umhverfi frá kl. 12:00–17:00.
Komdu og njóttu þjóðhátíðardagsins með okkur yfir nýbökuðum vöfflum, kaffi og öðrum gómsætum veitingum, framreiddum á fallegu íslensku mávastelli í anda gamalla tíma. Á matseðlinum verða klassískar kræsingar að hætti ömmu sem vekja upp ljúfar minningar og sanna íslenska heimilisstemningu.
Hlökkum til að fagna þjóðhátíðardeginum með ykkur
Loading items…
No items found.

KEF Cafe matseðlar
Loading items…
No items found.
KEF Cafe matseðlar
Loading items…
No items found.
Gjafakort
No cards match your current filters.
