Gisting · Hótel Keflavík

Standard herbergi

Um herbergið

Upplifðu þægindi og góðan aðbúnað í Standard herbergjum okkar

Standard herbergin okkar eru hlýleg og þægileg með öllum helstu aðbúnaði sem þú þarft fyrir notalega dvöl nálægt Keflavíkurflugvelli. Hvort sem þú ert í stuttri viðkomu eða lengri ferð, bjóðum við upp á fyrsta flokks gistingu í nútímalegu og glæsilegu umhverfi.

Herbergin eru stílhrein, þægileg og vel búin til að tryggja að dvölin þín á Íslandi verði sem ánægjulegust. Við leggjum áherslu á smáatriðin – allt frá góðum rúmum og snyrtilegum baðherbergjum til fallegs innréttinga og notendavæns aðbúnaðar.


Við bjóðum upp á fjölbreytt herbergisval, fyrir einstaklinga, pör og hópa – hvort sem þú vilt eitt herbergi eða samliggjandi herbergi með aukarúmi. Athugið að útlit og skipulag herbergja getur verið mismunandi, svo myndir gefa til kynna mismunandi herbergistegundir.


Aðstaða og þægindi í herbergjum

  • Herbergistegundir

    Standard herbergi fyrir 1–3 gesti, með einstaklings eða hjónarúmum. Herbergisstærð er ýmist 14–24 m².
  • Aðstaða

    Lítill ísskápur, kaffivél, skrifborð og stóll.
  • Baðherbergi

    Sérbaðherbergi með sturtu, hágæða snyrtivörum og hárblásara.
  • Tæknibúnaður

    Rafrænt öryggislásakerfi, hraðvirkt Wi-Fi, flatskjár með gervihnattarásum, öryggishólf og sími.
  • Þjónusta

    Morgunverðarhlaðborð sem hefst snemma, à la carte morgunverður skv. pöntun, matur upp á herbergi á opnunartíma eldhúss, móttaka opin allan sólarhringinn, dagleg þrif og bjóðum einnig upp á þrif á þvotti sé þess óskað.
  • Hápunktar hótelsins KEF

    Aðgangur að lúxus vellíðunarstöðinni okkar, KEF SPA & Fitness, lúxusmatseðill á KEF Restaurant í hádegismat og/eða kvöldmat og Diamond Lounge, sem er bæði kaffihús á daginn og vín- og kokteilbar á kvöldin. Athugið að aðgangur að líkamsræktarstöðinni er ókeypis en KEF SPA upplifunin er í boði sem aukahlutur við dvölina gegn aukagjaldi.

Stærð

14-24 m²


Gestir

1-3 gestir


myndir


Móttökuþjónusta

Á Hótel Keflavík er móttakan opin allan sólarhringinn og starfsfólkið okkar tilbúið að aðstoða við allt sem snýr að dvölinni þinni. Við mælum með spennandi afþreyingu og veitingastöðum, og getum séð um að bóka akstur til og frá Keflavíkurflugvelli.

Leyfðu okkur að gera upplifun þína ógleymanlega.

Herbergi & svítur

No slides found. Please check your collection name and field settings.