Tilboðin okkar
Sértilboð
Komdu í heimsókn á Hótel Keflavík & Diamond Suites og upplifðu allt það besta sem við höfum upp á að bjóða á einstöku sérverði.
Gjafakort
Við bjóðum upp á gæða gjafakort okkar á góðu verði!
Skoðaðu allr þær upplifanir sem við höfum upp á að bjóða hér.
Upplifðu lúxus og þægindi á Hótel Keflavík & Diamond Suites, staðsett í hjarta Keflavíkur í aðeins 5 mínútna fjarlægð frá flugvellinum. Fríið þitt hefst á Hótel Keflavík með fyrsta flokks gistingu og frábærri þjónustu sem mun setja mark sitt á þitt ógleymanlega ferðalag.
Gæddu skilningarvitin lífi á okkar framúrskarandi veitingastað KEF, þar sem hver diskur er samsettur af sérvöldu hágæða hráefni og fagmennsku. Við lofum einstakri matarupplifun og kvöldstund í góðum félagsskap. Eftir kvöldverðinn mælum við með að njóta á kokteila- og vínbarnum okkar Diamond Bar, þar sem stemningin leikur um þig í glæsilegu og notalegu rými meðan þú gæðir þér á framandi kokteilum og sérvöldum vínum.
Nálægðin við flugvöllinn gefur þér tækifærið á að kúra aðeins lengur á mjúka koddanum. Að morgni er það svo lyktin af nýbakaða bakkelsinu og heitum réttunum sem vekja þig á okkar margrómaða morgunverðarhlaðborði. Fullkomin uppskrift til að koma þér af stað inn í daginn, tilbúin/n á vit ævintýranna. Upplifðu svo þægindin við að fá fyrirfram bókaðan akstur upp á flugvöllinn meðan þú geymir bílinn hjá okkur á meðan dvöl þinni erlendis stendur.
En þetta er ekki allt – við höfum spennandi fréttir! Núna á árinu 2024 munum við opna formlega KEF Spa & Fitness fyrsta flokks lúxus heilsulind með fullbúnri líkamsrækstarstöð. Vertu ein/n af þeim frystu sem fá að upplifa unaðslega vellíðan í fyrstu heilsulind Suðurnesja. Fylgstu með fyrir frekari upplýsingar á kef.is
Gefðu upplifun að gjöf með gjafabréfi á Hótel Keflavík & Diamond Suites. Við gerum hverja stund ógleymanlega, hvort sem það er rómantískt ferðalag, vellíðan og slökun í heilsulind okkar eða eftirminnileg upplifun í mat & drykk. Þínir nánustu eiga ekkert annað skilið en það besta og við hjá Hótel Keflavík munum færa þeim það. Fjárfestu í minningum og byrjaðu fríið hjá okkur.
Ertu með spurningar?
Ekki hika við að hafa samband við okkur
Vinsamlegast hringdu í okkur í (+354) 4207000 og veldu #3 fyrir beint samband við móttökuna
eða sendu okkur tölvupóst á stay@kef.is
Við erum þjónustu reiðubúin