Saga
Hótel Keflavík var opnað 17. maí 1986 og er því 20 ára á þessu ári.
Hótel Keflavík er fyrsta flokks hótel í miðbæ Keflavíkur. Hótelið er glæsilegt fjölskyldufyrirtæki, og hefur þótt kærkominn dvalarstaður fyrir þá sem vilja hvílast vel áður en haldið er af stað til annarra landa. Boðið er upp á akstur að Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Ráðstefnuhald og árshátíðir fyrirtækja hafa aukist jafnt og þétt enda aðstaðan öll hin besta og afþreying í miklu úrvali en áhersla hefur verið lögð á að veita góða og persónulega þjónustu í hvívetna.
Á Reykjanesi eru nokkrar af perlum íslenskrar náttúru, svo sem hið rómaða Bláa lón, Reykjanesskaginn og margt fleira.
Það fyrsta sem mörgum dettur í hug, er Leifsstöð. Það er ekki fjarri lagi að minnast á alþjóðaflugvöllinn í upphafi greinar um Hótel Keflavík því meirihluti gesta hótelsins er á leið til útlanda.
Þrátt fyrir að flugvöllurinn hafi staðið í útjaðri bæjarins í áratugi var það fyrst fyrir níu árum að fyrsta hótelið í bænum, Hótel Keflavík, var opnað. Nú eru hótelin í bænum orðin tvö.
Auk þess er gistiheimili rekið í tengslum við Hótel Keflavík.
Tildrög að stofnun hótelsins var sú að hóteleigandinn Jón William Magnússon og sonur hans, Steinþór Jónsson hótelstjóri, sáu fram á að þörf væri á hóteli í bænum. Í febrúar 1986 ákváðu þeir að hefjast handa. Þeir drógu fram nokkurra ára gamla teikningu af hótelinu, réðu til sín verktaka og þremur mánuðum síðar var hótelið risið. Það hlýtur að teljast nokkuð gott þegar um 1.250 fermetra byggingu á fimm hæðum er að ræða. Meirihluti hótelgestanna er útlendingar, fastagestir eru um 25% en íslenskir gestir eru um 30%.
Hótelgestir geta nýtt sér margskonar þjónustu. Til dæmis kostar ekkert að geyma bíl í upphitaðri bílageymslu á meðan á dvölinni stendur. Herbergin eru 68 og öll búin þeim þægindum sem þekkjast á góðum hótelum úti í hinum stóra heimi. Um er að ræða buxnapressu, peningaskáp, síma, fjórtán rása sjónvarpskerfi, tvær myndbandarásir og míníbar. Á jarðhæðinni er 60 manna salur sem notaður er sem veitinga- og fundarsalur. Hann er ekki íburðarmikill en engu að síður stórglæsilegur.
Fyrir nokkrum árum var neðsta hæð hótelsins tekin í gegn, salurinn stækkaður og glæsilegar innréttingar settar upp í anddyrinu. Á gólfinu eru ítalskar granítflísar, Balmoral, sem eru frá Teppabúðinni, en Steinþór hafði séð samskonar flísar á hóteli í Dublin. Öll teppi eru sérofin hjá Álafossi og á þeim er merki hótelsins. Teppabúðin sér um framleiðslu á Álafossteppunum. Loftið í gestamóttökunni er lagt gulllitaðri álklæðningu frá Íslenska verslunarfélaginu og sams konar loft hafði Steinþór séð í útlöndum. Honum fannst þetta vera fallegasta loftklæðningin.
„Þegar þetta var tilbúið var gaman að sjá að allt hafði gengið upp“ segir Steinþór. „Þetta lítur ágætlega út í sameiningu. Maður var búinn að stela hugmyndum héðan og þaðan. Við vorum búin að hafa þessa móttöku í bígerð frá því við opnuðum hótelið árið 1986 þar til við hrintum henni í framkvæmd árið 1992.
Anddyrið var miklu minna áður. Þar sem skrifstofurnar eru núna var innrömmunarfyrirtæki og þar sem setustofan er núna voru skrifstofurnar.“ Guðmundur Gunnlaugsson arkitekt hannaði borðið í gestamóttökunni sem er úr mahóní. Nýja trésmiðjan sá um smíðina en borðið er lagt granítplötum frá Steinsmiðju J. Helgasonar. Glersteinsveggur skilur setustofuna frá anddyrinu og er hann frá Glersölunni í Keflavík. „Við reyndum að versla eins mikið og við gátum við fyrirtæki í Keflavík.“ segir Steinþór sem er borinn og barnfæddur Keflvíkingur. Listaverk setja svip sinn á neðstu hæð hótelsins. Nokkrar myndir eftir Eirík Smith eru á veggjunum og skúlptúrar eftir Erling Jónsson fá að njóta sín. Neðsta hæðin er ekki sú eina sem fær „andlitslyftingu“. Ráðgert er að betrumbæta herbergin sjálf, svo sem baðherbergin þar sem setja á glerveggi í staðinn fyrir hengi. Það er ljóst að fleiri og fleiri ferðamenn munu njóta þess að vera á þessu fyrsta hóteli Suðurnesja og það er langt í frá að verðurbarði bærinn Keflavík hafi einungis upp á að bjóða nálægð við alþjóðaflugvöllinn. Því hafa ferðamenn gert sér grein fyrir því stutt er í náttúruperlur eins og Bláa lónið.